---
title: 'Ástir, galdrar og myrk leyndarmál í nýjum sögulegum sagnaflokki Birgittu H. Halldórsdóttur'
url: 'https://press.storytel.is/post/astir-galdrar-og-myrk-leyndarmal-i-nyjum-sogulegum-sagnaflokki-b'
author: 'Storytel - fyrir fjölmiðla'
published: '2026-09-07T11:45:00+00:00'
updated: '2026-09-14T11:57:14+00:00'
description: 'Mæðgurnar, fyrsta bókin í nýjum sögulegum sagnaflokki eftir Birgittu H. Halldórsdóttur, er komin út á Storytel. Sagan gerist á Vestfjörðum á 16. öld þar sem ástir, galdrar og myrk leyndarmál fléttast saman og örlög kvenna eru í forgrunni.'
image: 'https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/01/31/67cf1b8aa2a38_thumbnail.jpg'
category: 'Press release'
language: is
---

# Ástir, galdrar og myrk leyndarmál í nýjum sögulegum sagnaflokki Birgittu H. Halldórsdóttur

![](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/01/31/67cf1b8aa2a38_thumbnail.jpg)

**Mæðgurnar, fyrsta bókin í nýjum sögulegum sagnaflokki eftir Birgittu H. Halldórsdóttur, er komin út á Storytel. Sagan gerist á Vestfjörðum á 16. öld þar sem ástir, galdrar og myrk leyndarmál fléttast saman og örlög kvenna eru í forgrunni.**

*Í einangraðri sveit á sunnanverðum Vestfjörðum á 16. öld er Guðrún í Seli grýtt fyrir fimmtán ára gamlan glæp sem sveitungar hennar kalla blóðskömm. Dóttir hennar, Álfheiður, verður vitni að ofbeldinu, hleypur í skelfingu fram af bjargi og er talin af - en þetta er aðeins upphafið á sögu okkar.*

*Skammt frá sveitinni, í djúpum og aflokuðum dal, leynast leyndarmál fortíðarinnar þar sem útlegumenn lifa eftir eigin lögmálum og dýrka gleymda heiðni og galdra. Í landi elds og ísa mætast örlög og ástir í æsispennandi sagnaflokki þar sem engin kona er fórnarlamb heldur skapari eigin örlaga.*

![](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2026/09/14/6aa7de04851df.jpeg)

Birgitta H. Halldórsdóttir hefur skrifað fjölda bóka á löngum ferli og eru sögur hennar vel þekktar meðal íslenskra lesenda og hlustenda. Eftir hana liggja meðal annars spennusögur, glæpasögur og rómantískar ástarsögur. Í Mæðgunum snýr hún sér að sögulegri rómantík þar sem örlög kvenna eru í forgrunni.

**Mæðgurnar kom út sem hljóðbók í lestri Söru Dögg Ásgeirsdóttur og sem rafbók á Storytel 7. september 2026.**

**[Sjá nánar á Storytel.com](https://www.storytel.com/is/books/m%C3%A6%C3%B0gurnar-14996205)**
