---
title: 'Kosning hafin fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin - Veldu bestu hljóðbækur ársins!'
url: 'https://press.storytel.is/post/kosning-hafin-fyrir-islensku-hljodbokaverdlaunin-veldu-bestu-hlj'
author: 'Storytel - fyrir fjölmiðla'
published: '2026-01-16T09:59:00+00:00'
updated: '2026-01-16T10:19:25+00:00'
description: 'Nú hefur almenningur tækifæri til að kjósa sína eftirlætis hljóðbók í forvali fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin – árlega uppskeruhátíð sem heiðrar höfunda og lesara framúrskarandi íslenskra hljóðbóka frá liðnu ári.'
image: 'https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2026/01/16/696a10a4dc7ca_thumbnail.jpeg'
category: 'Press release'
language: is
---

# Kosning hafin fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin - Veldu bestu hljóðbækur ársins!

![](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2026/01/16/696a10a4dc7ca_thumbnail.jpeg)

Nú hefur almenningur tækifæri til að kjósa sína eftirlætis hljóðbók í forvali fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin – árlega uppskeruhátíð sem heiðrar höfunda og lesara framúrskarandi íslenskra hljóðbóka frá liðnu ári.

Í forvalinu eru vinsælustu hljóðbækurnar sem gefnar voru út íslensku árið 2025. Bækurnar eru valdar út frá hlustun og stjörnugjöfum notenda í Storytel-appinu. Í hverjum flokki eru 15–25 bækur, og verðlaunaflokkarnir eru: skáldsögur, glæpa- og spennusögur, barna- og ungmennabækur, ljúflestur og rómantík, auk óskáldaðs efnis.

Að lokinni kosningu almennings verða fimm efstu hljóðbækurnar í hverjum flokki formlega tilnefndar. Því næst taka við dómnefndir skipaðar af fagfólki á sviði bókmennta sem hafa það að leiðarljósi að líta heildstætt á hvert verk. Sérstök áhersla er lögð á vandaðan lestur, sem eykur upplifun hlustenda. Hljóðbók ársins í hverjum flokki verður síðan útnefnd á glæsilegri verðlaunahátíð í mars, þar sem höfundar og lesarar verða heiðraðir.

Kosningin er opin öllum og fer fram á [vef Íslensku hljóðbókaverðlaunanna ](https://awards.storytel.com/is/)og stendur til  26. janúar. Taktu þátt og kjóstu þína eftirlætis hljóðbók!

*[Ljósmyndir](https://awards.storytel.com/is/myndir-2025-is/) frá fyrri hátíðum og frekari upplýsingar má finna á á[ heimasíðu Íslensku hljóðbókaverðlaunanna](https://awards.storytel.com/is/um-storytel-awards/).*
