---
title: 'Kosning hafin fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin'
url: 'https://press.storytel.is/post/kosning-hafin-fyrir-islensku-hljodbokaverdlaunin'
author: 'Storytel - fyrir fjölmiðla'
published: '2025-01-22T11:01:00+00:00'
updated: '2025-06-20T10:52:58+00:00'
description: 'Veldu bestu hljóðbækur ársins!'
image: 'https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/01/30/67cf1abc6ed5b_thumbnail.jpeg'
category: 'Press release'
language: is
---

# Kosning hafin fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin

![](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/01/30/67cf1abc6ed5b_thumbnail.jpeg)

Veldu bestu hljóðbækur ársins!

Nú hefur almenningur tækifæri til að kjósa sína eftirlætis hljóðbók í forvali fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin - Storytel Awards 2025. Árleg uppskeruhátíð sem heiðrar höfunda, lesara og útgefendur framúrskarandi íslenskra hljóðbóka frá liðnu ári.

Í forvalinu eru vinsælustu hljóðbækur ársins 2024, valdar út frá hlustunartölum og stjörnugjöfum notenda í Storytel-appinu. Í hverjum flokki eru 15–25 bækur, og verðlaunaflokkarnir í ár eru:

Í forvalinu eru vinsælustu hljóðbækurnar hjá Storytel, sem allar voru gefnar út á íslensku árið 2024. Bækurnar eru valdar út frá hlustun og stjörnugjöfum notenda í Storytel-appinu. Í hverjum flokki eru 15–25 bækur, og verðlaunaflokkarnir í ár eru: skáldsögur, glæpa- og spennusögur, barna- og ungmennabækur, ljúflestur og rómantík, auk óskáldaðs efnis.

Að lokinni kosningu almennings verða fimm efstu hljóðbækurnar í hverjum flokki formlega tilnefndar. Því næst taka við dómnefndir skipaðar af fagfólki á sviði bókmennta sem hafa það að leiðarljósi að líta heildstætt á hvert verk. Sérstök áhersla er lögð á vandaðan lestur, sem eykur upplifun hlustenda. Hljóðbók ársins í hverjum flokki verður síðan útnefnd á glæsilegri verðlaunahátíð 27. mars, þar sem höfundar og lesarar verða heiðraðir.

Kosningin er opin öllum og fer fram á [vef Íslensku hljóðbókaverðlaunanna.](https://awards.storytel.com/is/) Kosning stendur yfir til  3. febrúar 2025 - [taktu þátt og kjóstu þína eftirlætis hljóðbók!](https://awards.storytel.com/is/)
