---
title: 'Ný glæpasaga Hugrúnar Björnsdóttur: Uns dauðinn aðskilur okkur.'
url: 'https://press.storytel.is/post/ny-glaepasaga-hugrunar-bjornsdottur-uns-daudinn-adskilur-okkur'
author: 'Storytel - fyrir fjölmiðla'
published: '2025-07-11T17:26:57+00:00'
updated: '2026-01-16T09:59:02+00:00'
description: "Uns dauðinn aðskilur okkur er önnur bók Hugrúnar Björnsdóttur um réttarsálfræðinginn Kamillu Brim. Kamilla stendur frammi fyrir flóknu máli. Ungur maður kærir konu fyrir kynferðisbrot og samband þeirra reynist flóknara en virðist við fyrstu sýn.\_"
image: 'https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/07/11/68714957c1537_thumbnail.png'
category: 'Press release'
language: is
---

# Ný glæpasaga Hugrúnar Björnsdóttur: Uns dauðinn aðskilur okkur.

![](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/07/11/68714957c1537_thumbnail.png)

[Uns dauðinn aðskilu](https://www.storytel.com/is/books/uns-dau%C3%B0inn-a%C3%B0skilur-okkur-11047970)r okkur er önnur bók Hugrúnar Björnsdóttur um réttarsálfræðinginn Kamillu Brim. Kamilla stendur frammi fyrir flóknu máli. Ungur maður kærir konu fyrir kynferðisbrot og samband þeirra reynist flóknara en virðist við fyrstu sýn.

Hugrún braust fram á sjónarsviðið með fyrstu bók sinni [Rót alls ills](https://www.storytel.com/is/books/r%C3%B3t-alls-ills-7516467) sem naut fádæma vinsælda og hún dregur ekkert undan með framhaldinu. Á einstakan hátt ægir saman ást og glæpum, ljósi og myrkri og brugðið er upp sterkum myndum af breyskum sögupersónum og samfélagi þar sem sannleikur og réttlæti þurfa oft að lúta lægra haldi.   
  
![](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/07/11/6871437f597c9.jpg)

Nánari upplýsingar um Hugrúnu og bækurnar hennar má einnig finna hér: <https://hbjorns.is/>

**Lesarar:** Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Arnmundur Ernst Backman og Berglind Alda Ástþórsdóttir  
**Útgáfudagur:** 14. júlí 2025  
**Útgefandi:** Storytel Original
