---
title: 'Sígildir sveitarómansar Ingibjargar Sigurðardóttur koma út á Storytel'
url: 'https://press.storytel.is/post/sigildir-sveitaromansar-ingibjargar-sigurdardottur-koma-ut-a-sto'
author: 'Storytel - fyrir fjölmiðla'
published: '2025-08-14T14:10:00+00:00'
updated: '2026-01-16T09:59:28+00:00'
description: "Í tilefni þess að rithöfundurinn Ingibjörg Sigurðardóttir hefði orðið 100 ára sunnudaginn 17. ágúst, kemur skáldsaga hennar, Ást og hatur út í hljóðbókarformi á Storytel.\_"
image: 'https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/08/14/689dee4c629f2_thumbnail.jpeg'
category: 'Press release'
language: is
---

# Sígildir sveitarómansar Ingibjargar Sigurðardóttur koma út á Storytel

![](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/08/14/689dee4c629f2_thumbnail.jpeg)

Í tilefni þess að rithöfundurinn Ingibjörg Sigurðardóttir hefði orðið 100 ára sunnudaginn 17. ágúst, kemur skáldsaga hennar, ***Ást og hatur*** út í hljóðbókarformi á Storytel.

Í tilefni þess að rithöfundurinn Ingibjörg Sigurðardóttir hefði orðið 100 ára sunnudaginn 17. ágúst, kemur skáldsaga hennar, ***Ást og hatur*** út í hljóðbókarformi á Storytel.

![Ingibjörg Sigurðardóttir rithöfundur](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/08/14/689decdc59390.jpg "Ingibjörg Sigurðardóttir rithöfundur")

Ingibjörg ólst upp í Sandgerði, skrifaði yfir þrjátíu bækur og varð landsþekkt fyrir hlýjar og fallegar frásagnir af lífi og örlögum fólks við sjóinn.

Á síðustu árum hafa verk íslenskra kvenrithöfunda frá 20. öld notið endurnýjaðs lífs á Storytel. Skáldsögur Guðrúnar frá Lundi og Birgittu H. Halldórsdóttur hafa til dæmis notið gríðarlegra vinsælda og meðal annars hlotið Íslensku hljóðbókaverðlaunin. Nú bætist Ingibjörg Sigurðardóttir í þann hóp með Ást og hatur, skáldsögu sem á erindi til hlustenda nútímans rétt eins og hún heillaði lesendur á sínum tíma. Á komandi mánuðum munu fleiri skáldsögur Ingibjargar koma út á Storytel þar sem nýjar kynslóðir geta kynnst þessum gleymdu perlum sem margar hverjar eru ófáanlegar í dag.

![Ást og hatur bókakápa](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/08/14/689ded0588cbd.jpg "Ást og hatur bókakápa")

[Ást og hatur á Storytel](https://www.storytel.com/is/books/%C3%A1st-og-hatur-11983159)

[Nánar um Ingibjörgu á Bókmenntavef Borgarbókasafnsins](https://bokmenntir.is/bokmenntavefur/hofundar/ingibjorg-sigurdardottir)
