---
title: 'Símon segir. Ný glæpasaga frá Önnu Margréti Sigurðardóttur.'
url: 'https://press.storytel.is/post/simon-segir-ny-glaepasaga-fra-onnu-margreti-sigurdardottur'
author: 'Storytel - fyrir fjölmiðla'
published: '2025-08-06T15:07:39+00:00'
updated: '2026-01-16T09:59:19+00:00'
description: 'Símon segir eftir Önnu Margréti Sigurðardóttur er spennandi íslensk glæpasaga. Þetta er fjórða bókin í vinsæla bókaflokknum um rannsóknarlögregluteymið Bergþóru og Jakob. Áður hafa komið út bækurnar Hringferðin, Örvænting og Öskrið.'
image: 'https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/08/06/68936ff6ca25d_thumbnail.png'
category: 'Press release'
language: is
---

# Símon segir. Ný glæpasaga frá Önnu Margréti Sigurðardóttur.

![](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/08/06/68936ff6ca25d_thumbnail.png)

Símon segir eftir Önnu Margréti Sigurðardóttur er spennandi íslensk glæpasaga. Þetta er fjórða bókin í vinsæla bókaflokknum um rannsóknarlögregluteymið Bergþóru og Jakob. Áður hafa komið út bækurnar Hringferðin, Örvænting og Öskrið.

Eldur logar í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. Í rústunum finnst lík og fær rannsóknalögregluteymið Bergþóra og Jakob málið í sínar hendur. Málið leiðir Bergþóru djúpt inn í dimman heim fíknar og kúgunar þar sem Hallur, barnsfaðir dóttur hennar, er sokkinn í skuldafen og glæpamaðurinn Símon hefur fast tak á honum.

![](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/08/06/68936e3280a55.jpg)

[Símon segir ](https://www.storytel.com/is/books/s%C3%ADmon-segir-11754501)er fjórða bók Önnu Margrétar Sigurðardóttur um Bergþóru og Jakob. Fyrri bækur í [seríunni](https://www.storytel.com/is/series/berg%C3%BE%C3%B3ra-og-jakob-125779) eru [Hringferðin](https://www.storytel.com/is/books/hringfer%C3%B0in-1235172), [Örvænting](https://www.storytel.com/is/books/%C3%B6rv%C3%A6nting-2426455) og [Öskrið](https://www.storytel.com/is/books/%C3%B6skri%C3%B0-7516454) – allar fáanlegar á Storytel.

**Lesari:** Þórunn Lárusdóttir  
**Útgáfudagur:** 11. ágúst 2025  
**Útgefandi:** Storytel Original
