---
title: 'Söguáskorun Storytel: Bók fyrir ungmenni, skrifuð af ungmenni.'
url: 'https://press.storytel.is/post/soguaskorun-storytel-bok-fyrir-ungmenni-skrifud-af-ungmenni'
author: 'Storytel - fyrir fjölmiðla'
published: '2026-01-12T17:49:00+00:00'
updated: '2026-01-15T17:50:32+00:00'
description: "Nú á nýju ári ætlar Storytel að standa fyrir nýrri\_söguáskorun fyrir krakka á aldrinum 12-17 ára. Markmiðið er að hvetja sem flesta til að skapa og skrifa eigin sögur. Áskorunin er frábært tækifæri fyrir unga höfunda til að þróa hugmynd í heilsteypta sögu og eiga möguleika á að sjá hana verða að útgefnu verki, bæði sem rafbók og hljóðbók. Öllum krökkum á aldrinum 12-17 er velkomið að taka þátt en skilafrestur er til og með 15. mars næstkomandi."
image: 'https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2026/01/15/696928520c9ac_thumbnail.jpeg'
category: 'Press release'
language: is
---

# Söguáskorun Storytel: Bók fyrir ungmenni, skrifuð af ungmenni.

![](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2026/01/15/696928520c9ac_thumbnail.jpeg)

Nú á nýju ári ætlar Storytel að standa fyrir nýrri söguáskorun fyrir krakka á aldrinum 12-17 ára. Markmiðið er að hvetja sem flesta til að skapa og skrifa eigin sögur. Áskorunin er frábært tækifæri fyrir unga höfunda til að þróa hugmynd í heilsteypta sögu og eiga möguleika á að sjá hana verða að útgefnu verki, bæði sem rafbók og hljóðbók. Öllum krökkum á aldrinum 12-17 er velkomið að taka þátt en skilafrestur er til og með 15. mars næstkomandi.

Tilgangur áskorunarinnar er að vekja áhuga á lestri ungmenna og efla færni í skapandi tjáningu á íslensku, með því að hvetja ungmenni til að skrifa og þróa eigin sögur fyrir jafnaldra sína og jafnframt gefa þeim tækifæri til að sjá ritstörf sín þróast í fullmótaða útgefna stafræna bók.

Svona á sagan að vera:

- Heildstæð saga á íslensku, 8.000-30.000 orð, sem síðar yrði fullunin með ritstjóra.
- Fyrir lesendur 12–17 ára. Bók fyrir ungmenni, skrifuð af ungmenni.
- Höfundur á aldrinum 12–17 ára. Öllum krökkum á aldrinum 12-17 er velkomið að taka þátt.
 

Verðlaun fyrir besta handritið:

- Útgáfusamningur við Storyside sem felur í sér útgáfu og framleiðslu á raf- og hljóðbók
- Ritstjórn og frágangur, aðstoð ritstjóra við að fullvinna bókina.
- Hönnun á bókakápu ásamt markaðssetningu og kynningu á bókinni í samstarfi við Storytel
 

Skilafrestur 15. mars 2026. Skila skal handritum á handrit@storytel.com, merkt “Handritasamkeppni” þar sem fram kemur fullt nafn höfundar, kennitala, sími auk nafn og símanúmer forráðamanns .

Nánari upplýsingar á https://www.storytel.com/is/c/soguaskorun
