---
title: 'Sögur fyrir páskafríið'
url: 'https://press.storytel.is/post/sogur-fyrir-paskafriid'
author: 'Storytel - fyrir fjölmiðla'
published: '2025-04-15T10:58:00+00:00'
updated: '2025-06-20T10:53:41+00:00'
description: "Páskarnir eru fríið þar sem það er fullkomlega í lagi að gera ekkert. Dagarnir verða aðeins lengri, kaffibollinn aðeins notalegri – og þú færð loksins smá stund fyrir þig.\r\nHvort sem þú ætlar að slaka á heima, fara í bústað eða njóta páskana með fjölskyldunni, þá er fátt betra en góð saga með súkkulaðinu. Hér eru sögur á\_Storytel\_sem henta fullkomlega í páskastemmningu – allt frá spennandi glæpasögum, grípandi sönnum sögum, hjartnæmum skáldsögum og ævintýrum fyrir börnin. Þú þarft bara að finna þína sögu, hlusta, og njóta."
image: 'https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/04/30/6812022b53127_thumbnail.jpeg'
category: 'Press release'
language: is
---

# Sögur fyrir páskafríið

![](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/04/30/6812022b53127_thumbnail.jpeg)

Páskarnir eru fríið þar sem það er fullkomlega í lagi að gera ekkert. Dagarnir verða aðeins lengri, kaffibollinn aðeins notalegri – og þú færð loksins smá stund fyrir þig.

Hvort sem þú ætlar að slaka á heima, fara í bústað eða njóta páskana með fjölskyldunni, þá er fátt betra en góð saga með súkkulaðinu. Hér eru sögur á Storytel sem henta fullkomlega í páskastemmningu – allt frá spennandi glæpasögum, grípandi sönnum sögum, hjartnæmum skáldsögum og ævintýrum fyrir börnin. Þú þarft bara að finna þína sögu, hlusta, og njóta.

## ![](https://www.visir.is/i/41B3F4A1D9343629440997EDC761DD075002CDC25CB3A2021FA8A16061379E9F_713x0.jpg)Spennandi páskakrimmar

**Vetrarborgin eftir Arnald Indriðason.** Glæpasögurnar um leynilögreglumanninn Erlend hafa notið gríðarlegrar hylli hjá Íslendingum sem og víða um heim. Vetrarborgin er nýjasta hljóðbókin í seríunni frá konungi krimmanna.

**DNA: 112 Reykjavík eftir Yrsu Sigurðardóttur.** Sagan sem lifnar við á skjánum. Hitaðu upp fyrir sjónvarpsþáttaröðina Reykjavík 112 sem verður frumsýnd um páskana. DNA er bókin sem þættirnir byggja á.

**Leynigesturinn eftir Nita Prose.** Ekki trufla, hér er verið að leysa ráðgátu … Æsispennandi sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Þernan.

![](https://www.visir.is/i/7DD5AB991C6721AA4D3800D19E5B28C6C360ACCE6CAC0C9C0C6DEDC07A515197_713x0.jpg)

**Skammarkrókurinn eftir Sofie Sarenbrant.** Sænskur krimmi eins og þeir gerast bestir. Sofie hefur þrívegis verið valin glæpasagnahöfundur ársins í Svíþjóð.

**Heim fyrir myrkur eftir Evu Björgu Ægisdóttur.** Æsispennandi glæpasaga sem hlaut Blóðdropann 2023 og var valin besta glæpasaga síðasta árs á Íslensku hljóðbókaverðlaununum.

**Undirferli eftir Lone Theils.** Lífið í Klitmøller hefur aldrei verið myrkara. Undirferli fylgir eftir hinni vinsælu Heimkomu um rannsóknarlögregluna Signe Brask.

![](https://www.visir.is/i/44E2E0FEB42780D4059C97CE9E61399BA502C6930B720D8CC97BB16BCF9D52CD_713x0.jpg)

## Sannar sögur

**Rokið í stofunni eftir Guðrúnu J. Magnúsdóttur.** Hersetin Reykjavík árið 1942. Þrettán ára stúlka er handtekin og dæmd til dvalar á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði. Þar voru vistaðar stúlkur er gefið var að sök að hafa átt náið samneyti við erlent setulið í landinu. Söguleg skáldsaga eftir höfund Álfadals og byggir á sönnum frásögnum.

**Bróðir minn í 75 pörtum eftir Sebastian Richelsen.** Árið 2011 er Peter Richter Andersen myrtur í sumarbústað foreldra sinn. Líkið var bútað niður í 75 parta og dreift um lóðina. Bróðir hans var dæmdur sekur en heldur því enn fram að hann sé saklaus. Fylgstu með rannsókn eins hrottalegasta morðmáls Danmerkur.

**Ég ætla að djamma þar til ég drepst eftir Ívar Örn Katrínarson.** Ívar Örn, einnig þekktur sem tónlistarmaðurinn Dr. Mister, lenti ungur í óreglu og eiturlyfjaneyslu. Ívar opnar sig um hörkuna sem viðgengst í íslenskum undirheimum og hvernig hann vann sig út úr hörðum heimi handrukkunar og eiturlyfjasölu.

![](https://www.visir.is/i/D2A3474EA87E481FEF5EAAF1288EC838CDC0025E59FFDC6517BF8C0880A8B685_713x0.jpg)

**Útkall eftir Óttar Sveinsson.** 30 ótrúlegar en sannar sögur. Útkallsbækurnar hafa verið eitthvert vinsælasta lesefni Íslendinga í áratugi. Hitaðu upp fyrir nýjustu söguna sem kemur út 23. apríl.

**Morðin í Dillonshúsi  eftir Sigríði Dúu Goldsworthy.** Fyrir 70 árum gerðist hræðilegur harmleikur í Dillonshúsi í Reykjavík. Heimilisfaðirinn gaf eiginkonu sinni og þremur ungum börnum þeirra eitur og svipti svo sjálfan sig lífi. Í þessari bók er sögð saga þeirra sem við sögu komu. Sönn örlagasaga.

**Gáfaða dýrið eftir Sæunni Kjartansdóttur.** Hvernig stendur á því að við erum eins og við erum og gerum það sem við gerum? Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir er einnig höfundur bókanna Árin sem engin man og Fyrstu 1000 dagarnir.

## Hrífandi skáldsögur

![](https://www.visir.is/i/EF39C68216BA930B411DBB80430BB520BB9D4E05F3187F9AAD05E99855E14017_713x0.jpg)

**Valskan eftir Nönnu Rögnvaldsdóttur.** Söguleg skáldsaga um prestdótturina Völku. Valskan hefur notið mikilla vinsælda og var valin besta skáldsagan á Íslensku hljóðbókaverðlaununum 2025.

**Nótt á mánaslóð eftir Birgittu H. Halldórsdóttur.** Margbrotin og sígild saga um mæðgur sem gæddar eru óvenjulegum hæfileikum og ótrúleg örlög þeirra. Sagan gerist á Íslandi og Noregi og við hana fléttast óhugnanlegir samtímaviðburðir sem hafa hræðilegar afleiðingar í för með sér.

**Bridde eftir Erlu S. Jensdóttur.** Hrífandi skáldsaga sem veitir nýja sýn á liðna tíð og óður til allra þeirra sterku kvenna sem stóðu í fararbroddi kvenréttindabaráttu á Íslandi.

![](https://www.visir.is/i/846358BB62E62B6E5F6FACFB43DD76092B5D4666872762D437284400A4BACF51_713x0.jpg)

**Biðlund eftir Nora Roberts.** Rómantík og dulúð í þessari New York Times metsölubók í yndislegum lestri Anítu Briem. Nora Roberts er einn vinsælasti ástarsagnahöfundur Bandaríkjanna.

**Æska eftir Tove Ditlevsen.** Hluti af endurminningaþríleik einum merkari höfundum Danmerkur, Tove Ditlevsen. Verk hennar gefa einstaka innsýn í líf kvenna á 20. öld og eru nú lesnar sem sígildar bókmenntir.

**Hjartabein eftir Colleen Hoover.** Metsöluhöfundurinn Colleen Hoover hefur notið gríðarlegra vinsælda með bækur sínar Þessu lýkur hér, og Verity. Hjartabein er rómantísk og spennandi saga sem heldur þér til enda.

## Páskaævintýri og skemmtilegri skjátími

![](https://www.visir.is/i/E0954E64DF63275DEA9D66353134FB150A4663FC30D0D75281A834265DF726D3_713x0.jpg)

**Amma slær í gegn eftir Gunnar Helgason.** Amma Köben snýr aftur AF KRAFTI! Stellubækurnar eftir Gunnar Helgason eru með vinsælustu barnabókunum á Storytel og hafa sópað til sín verðlaunum!

**Kærókeppnin eftir Emblu Bachmann.** Ungi rithöfundurinn Embla Bachman fylgir eftir frumraun sinni og verðlaunabókinni Stelpur stranglega bannaðar með nýrri sögu fyrir forvitna krakka.

**Sveindís Jane - saga af stelpu í fótbolta.** Sagan af því þegar Sveindís Jane, ein fremsta fótboltakona heims, fann fótboltann og uppgötvaði að hún hljóp hraðar en hinir á vellinum er leiftrandi skemmtileg og var valin barnabók ársins á Íslensku hljóðbókaverðlaununum 2025.

**Nú er bara að hlusta, slaka á og njóta páskanna með góðri sögu.**
