---
title: 'Tilnefningar til íslensku hljóðbókaverðlaunanna 2026'
url: 'https://press.storytel.is/post/tilnefningar-til-islensku-hljodbokaverdlaunanna-2026'
author: 'Storytel - fyrir fjölmiðla'
published: '2026-01-29T16:42:00+00:00'
updated: '2026-03-23T09:40:31+00:00'
description: 'Hér má sjá þær 25 hljóðbækur sem hljóta tilnefningu til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna Storytel Awards 2026. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum og fimm hljóðbækur eru tilnefndar í hverjum flokki: börn og ungmenni, glæpa og spennusögur, skáldsögur, ljúflestur og rómantík og óskáldað efni.'
image: 'https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2026/01/28/697a9d7307b14_thumbnail.jpeg'
category: 'Press release'
language: is
---

# Tilnefningar til íslensku hljóðbókaverðlaunanna 2026

![](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2026/01/28/697a9d7307b14_thumbnail.jpeg)

Hér má sjá þær 25 hljóðbækur sem hljóta tilnefningu til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna Storytel Awards 2026. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum og fimm hljóðbækur eru tilnefndar í hverjum flokki: börn og ungmenni, glæpa og spennusögur, skáldsögur, ljúflestur og rómantík og óskáldað efni.

Almenn netkosning fór fram dagana 16. til 27. janúar, þar sem hlustendur völdu þær bækur sem nú hafa hlotið tilnefningu. Fimm efstu bækur hvers flokks úr netkosningu fara nú fyrir fagdómnefndir, sem velja að lokum sigurvegara.

Dómnefndir meta hljóðbækurnar sem heildstæð verk, þar sem vandaður lestur og framsögn geta bætt enn frekar við upplifun hlustanda. Því eru ekki aðeins höfundar verðlaunaðir, heldur einnig lesarar sem ljá bókunum rödd sína.

Vinningshafar verða kynntir við hátíðlega verðlaunaafhendingu 17. mars. Verðlaunin eru veitt árlega og fara nú fram í sjöunda sinn á Íslandi, þar sem framúrskarandi og vinsælustu hljóðbókum síðasta árs er fagnað.

Eftirfarandi höfundar og lesarar hljóta tilnefningu til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna Storytel Awards 2026.

#### **Börn og ungmenni**

Á eftir dimmum skýjum  
Höfundur: Elísabet Thoroddsen  
Lesari: Erna Hrönn Ólafsdóttir  
Útgefandi: Bókabeitan

Ævintýri Petru papriku  
Höfundur: Hafdís Helgadóttir  
Lesari: Agla Bríet Bárudóttir  
Útgefandi: Hafdís Helgadóttir

Kærókeppnin  
Höfundur: Embla Bachmann  
Lesarar: Embla Bachmann, Mikael Kaaber  
Útgefandi: Bókabeitan

Stella segir bless  
Höfundur: Gunnar Helgason  
Lesari: Gunnar Helgason  
Útgefandi: Forlagið

Sveindís Jane – saga af stelpu í landsliði  
Höfundar: Sveindís Jane Jónsdóttir, S. Norðfjörð  
Lesari: Álfrún Helga Örnólfsdóttir  
Útgefandi: LOKI ehf

#### **Glæpa- og spennusögur**

Dauðaþögn  
Höfundur: Anna Rún Frímannsdóttir  
Lesari: Svandís Dóra Einarsdóttir  
Útgefandi: Salka

Dauðinn einn var vitni  
Höfundur: Stefán Máni  
Lesari: Rúnar Freyr Gíslason  
Útgefandi: Sögur útgáfa

Herranótt  
Höfundur: Steindór Ívarsson  
Lesari: Birna Pétursdóttir  
Útgefandi: Storyside

Hildur  
Höfundur: Satu Rämö  
Lesari: Sigríður Eyrún Friðriksdóttir  
Þýðing: Erla Elíasdóttir Völudóttir  
Útgefandi: Forlagið

Kvöldið sem hún hvarf  
Höfundur: Eva Björg Ægisdóttir  
Lesarar: Hrafnhildur Orradóttir, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Rósa Guðný Þórsdóttir, Kolbeinn Arnbjörnsson  
  
Útgefandi: Bjartur

#### **Ljúflestur og rómantík**

Áttunda undur veraldar  
Höfundur: Lilja Rós Agnarsdóttir  
Lesari: Sigríður Eyrún Friðriksdóttir  
Útgefandi: Bókabeitan

Fiðrildaherbergið  
Höfundur: Lucinda Riley  
Lesari: Álfrún Helga Örnólfsdóttir  
Þýðing: Valgerður Bjarnadóttir  
Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa

Hittu mig í Hellisgerði  
Höfundur: Ása Marin  
Lesari: Sigrún Hermannsdóttir  
Útgefandi: Forlagið

Sé eftir þér  
Höfundur: Colleen Hoover  
Lesarar: Berglind Alda Ástþórsdóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir  
Þýðing: Marta Hlín Magnadóttir, Birgitta Elín Hassell  
Útgefandi: Bókabeitan

Undir óskasólu  
Höfundur: Birgitta H. Halldórsdóttir  
Lesari: Svandís Dóra Einarsdóttir  
Útgefandi: Storytel Original

#### **Óskáldað efni**

Ég ætla að djamma þar til ég drepst  
Höfundur: Ívar Örn Katrínarson  
Lesari: Daníel Ágúst Haraldsson  
Útgefandi: Storyside

Mennska  
Höfundur: Bjarni Snæbjörnsson  
Lesari: Bjarni Snæbjörnsson  
Útgefandi: Forlagið

Nóttin sem öllu breytti: snjóflóðið á Flateyri  
Höfundar: Helga Guðrún Johnsen, Sóley Eiríksdóttir  
Lesari: Sóley Eiríksdóttir  
Útgefandi: Forlagið

Síðan hittumst við aftur  
Höfundur: Birgitta H. Halldórsdóttir  
Lesari: Aníta Briem  
Útgefandi: Storyside

Sjávarföll: Ættarsaga  
Höfundur: Emil B. Karlsson  
Lesari: Einar Aðalsteinsson  
Útgefandi: Storyside / Sæmundur

#### **Skáldsögur**

Bridde: Áfram stelpur  
Höfundur: Erla Sesselja Jensdóttir  
Lesarar: Elva Ósk Ólafsdóttir, Katla Njálsdóttir, Álfrún Helga Örnólfsdóttir  
Útgefandi: Storyside

Hefnd Diddu Morthens  
Höfundur: Sigríður Pétursdóttir  
Lesari: Sigríður Pétursdóttir  
Útgefandi: Forlagið

Ljósbrot  
Höfundur: Ingileif Friðriksdóttir  
Lesarar: Katla Njálsdóttir, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir  
Útgefandi: Salka

Sálarstríð  
Höfundur: Steindór Ívarsson  
Lesarar: Hanna María Karlsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir  
Útgefandi: Storyside

**Viðkomustaðir  
Höfundur: Ásdís Ingólfsdóttir  
Lesari: Valý Þórsteinsdóttir  
Útgefandi: Storyside / Sæmundur**

**Nánari upplýsingar og ljósmyndir frá fyrri hátíðum má finna á heimasíðunni [awards.storytel.com/is](https://awards.storytel.com/is/)**
