---
title: 'Völundur og Brúðumeistarinn hljóta tilnefningu til Blóðdropans!'
url: 'https://press.storytel.is/post/volundur-og-brudumeistarinn-hljota-tilnefningu-til-bloddropans'
author: 'Storytel - fyrir fjölmiðla'
published: '2024-11-27T19:06:00+00:00'
updated: '2025-03-10T16:59:04+00:00'
description: 'Storytel Original bækurnar Völundur eftir Steindór Ívarsson og Brúðumeistarinn eftir Óskar Guðmundsson hlutu tilnefningu til íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans 2024. Óskar hefur áður hlotið Blóðdropann fyrir bók sína Hilmu og Steindór hlaut í tilnefningu fyrir Blóðmeri 2023, en Völundur er seinni bókin í sömu seríu.'
image: 'https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/01/31/67cf1a545ad9b_thumbnail.jpg'
category: 'Press release'
language: is
---

# Völundur og Brúðumeistarinn hljóta tilnefningu til Blóðdropans!

![](https://frontend-assets.clipsource.com/655608ae71b82/sto-655608c7aaa25/2025/01/31/67cf1a545ad9b_thumbnail.jpg)

Storytel Original bækurnar Völundur eftir Steindór Ívarsson og Brúðumeistarinn eftir Óskar Guðmundsson hlutu tilnefningu til íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans 2024. Óskar hefur áður hlotið Blóðdropann fyrir bók sína Hilmu og Steindór hlaut í tilnefningu fyrir Blóðmeri 2023, en Völundur er seinni bókin í sömu seríu.

í umsögn dómnefndar um bækurnar segir:

[**Brúðumeistarinn**](https://www.storytel.com/is/books/br%C3%BA%C3%B0umeistarinn-2782883): ​„Vel upp­byggð saga þar sem at­b­urðir úr fortíðinni varpa dökk­um skugga á nú­tím­ann. Söguflétt­an er snjöll og fram­vind­an traust, þar sem hver vendipunkt­ur styrk­ir heild­ina. Spenn­an er óslit­in allt til loka, og höf­undi tekst listi­lega að viðhalda leynd­ar­dómn­um sem held­ur les­and­an­um í helj­ar­greip­um.“

[**Völundur**](https://www.storytel.com/is/books/v%C3%B6lundur-9264676): „Áhuga­verð og spenn­andi frá­sögn af óhugn­an­leg­um at­b­urðum sem ger­ast um miðja síðustu öld en enduróma inn í sam­tím­ann. Höf­und­ur dreg­ur fram sál­ar­ang­ist út­skúfaðra og teng­ir nú­tímaviðburði á listi­leg­an hátt við myrk ill­virki fortíðar­inn­ar, í áhrifa­ríkri og hug­vit­sam­lega upp­byggðri sögu sem held­ur les­and­an­um hug­föngn­um til enda.“
