Tilkynningar
Ótti - Ný glæpasaga Steindórs Ívarssonar komin út
Ný glæpasaga Steindórs Ívarssonar, Ótti, er komin út á Storytel í mögnuðum lestri Birnu Pétursdóttur. Ótti er fjórða bókin í hinni vinsælu glæpasagnaseríu Steindórs um rannsóknarlögreglukonuna Rúnu, en áður hafa komið út bækurnar Blóðmeri, Völundur og Herranótt.
Neyðarástand: Dagbók móður úr Grindavík – áhrifamikil frásögn Karitasar Nínu Viðarsdóttur
Þann 5. október kemur út hjá Storytel Original bókin Neyðarástand: Dagbók móður úr Grindavík eftir Karitas Nínu Viðarsdóttur. Bókin byggir á dagbókum sem Karitas hélt í náttúruhamförunum sem hófust í Grindavík haustið 2023 og umturnuðu lífi hennar, fjölskyldu hennar og heils samfélags.
Ástir, galdrar og myrk leyndarmál í nýjum sögulegum sagnaflokki Birgittu H. Halldórsdóttur
Mæðgurnar, fyrsta bókin í nýjum sögulegum sagnaflokki eftir Birgittu H. Halldórsdóttur, er komin út á Storytel. Sagan gerist á Vestfjörðum á 16. öld þar sem ástir, galdrar og myrk leyndarmál fléttast saman og örlög kvenna eru í forgrunni.
Frjálsar fæðingar innblástur að nýrri íslenskri spennusögu frá Sjöfn Asare
Hvað gerist þegar leit að fullkominni fæðingarupplifun verður hættuleg? Þessari spurningu veltir Sjöfn Asare upp í Fylgjumst að, nýrri spennusögu sem sækir innblástur í umræðu um freebirth-hreyfinguna og þau áhrif sem netsamfélög geta haft á fólk á viðkvæmum tímum.
Klassísk ráðgáta í anda Agöthu Christie í nýrri rómantískri spennusögu Hugrúnar Björnsdóttur
Hugrún Björnsdóttir snýr aftur með Milli ástar og haturs, nýja spennusögu um réttarsálfræðinginn Kamillu Brim. Að þessu sinni leiðir rannsókn hennar lesendur inn í rómantíska spennusögu í anda klassískra ráðgátusagna þar sem vinátta, ást og gömul leyndarmál fléttast saman og enginn virðist vera hafinn yfir grun.
Kynning á Storytel Pulse fyrir íslenskum rithöfundum
Storytel bauð nýverið íslenskum rithöfundum á morgunverðarkynningu þar sem nýi vettvangurinn Storytel Pulse var kynntur. Pulse veitir höfundum aðgang að innsýn um hvernig lesendur og hlustendur njóta bóka þeirra á Storytel og er ætlað að styðja við upplýstari ákvarðanatöku og dýpri tengsl við lesendahópinn.
Storytel Pulse: Rauntímagögn og innsýn fyrir höfunda
Storytel Pulse er nýr vettvangur sem gefur höfundum innsýn í lestur og hlustun á eigin bækur í rauntíma á einfaldan og sjónrænan hátt. Þar geta bæði nýir og reyndir höfundar fylgst með því hvernig bækur þeirra eru að standa sig, nánast á meðan lestur og hlustun á sér stað. Storytel Pulse hefur verið þróað í nánu samstarfi við höfunda og byggir á áhuga þeirra að fá skýrari innsýn í hvernig bækur lifa hjá lesendum og hlustendum.
Storytel kynnir nýja eiginleika í appinu sem hjálpa hlustendum að komast aftur í söguna.
Storytel er sífellt að þróa nýja eiginleika út frá hlustunarvenjum notenda til að gera upplifunina einfaldari og þægilegri. Nýjustu eiginleikarnir í appinu, Recap og Sleep Timer Recap, hjálpa notendum að rifja upp söguþráðinn og halda áfram þar sem frá var horfið, hvort sem hléið var í nokkra daga eða ef sofnað var í miðjum kafla.
Litla-Kló er fyrsta barnabók Díönu Sjafnar Jóhannsdóttur
Barnabókin Litla-Kló er hjartnæm og falleg saga um vináttu, drauma og leyndarmál og hversu erfitt það getur stundum reynst okkur að breyta rétt.
Niðurstöður Söguáskorunar Storytel
Söguáskorun Storytel 2026 er nú lokið. Við viljum þakka öllum sem tóku þátt fyrir frábærar viðtökur og fjölbreytt handrit. Það er greinilegt að mikill áhugi á sagnagerð og að margir búa yfir sterkum hugmyndum og sköpunarkrafti. Eftir vandlega yfirferð dómnefndar hefur verið tekin sú ákvörðun að veita ekki útgáfusamning að þessu sinni. Engu að síður bárust okkur áhugaverðar hugmyndir og greinilegt er að mikil frásagnargleði býr í unga fólkinu okkar á íslandi.
Bestu hljóðbækur ársins verðlaunaðar!
Mikil stemming var á Parliament hótelinu þriðjudaginn 17. mars þegar Íslensku hljóðbókaverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í sjöunda sinn. Meðal sigurvegara var hinn ungi og efnilegi rithöfundur Embla Bachmann, Glæpadrottning Satu Rämö auk þess sem leikarinn Bjarni Snæbjörnsson hlaut verðlaun fyrir sjálfsævisögu sína Mennsku. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 2020 og eru orðinn fastur hápunktur íslensks hljóðbókaárs. Þar komu saman höfundar, lesarar, útgefendur og aðrir aðstandendur bókmennta til að fagna framúrskarandi hljóðbókaútgáfu síðasta árs. Veitt voru verðlaun í fimm flokkum auk sérstakra heiðursverðlauna.
Tilnefningar til íslensku hljóðbókaverðlaunanna 2026
Hér má sjá þær 25 hljóðbækur sem hljóta tilnefningu til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna Storytel Awards 2026. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum og fimm hljóðbækur eru tilnefndar í hverjum flokki: börn og ungmenni, glæpa og spennusögur, skáldsögur, ljúflestur og rómantík og óskáldað efni.