Klassísk ráðgáta í anda Agöthu Christie í nýrri rómantískri spennusögu Hugrúnar Björnsdóttur
Hugrún Björnsdóttir snýr aftur með Milli ástar og haturs, nýja spennusögu um réttarsálfræðinginn Kamillu Brim. Að þessu sinni leiðir rannsókn hennar lesendur inn í rómantíska spennusögu í anda klassískra ráðgátusagna þar sem vinátta, ást og gömul leyndarmál fléttast saman og enginn virðist vera hafinn yfir grun.
Þegar vinahópur kemur saman á ný eftir mörg ár tekur kvöldið óvænta stefnu. Endurfundirnir hljóta skyndilegan endi þegar Sunneva fellur fram af svölum á efri hæð hússins. Lögreglan kallar réttarsálfræðinginn Kamillu Brim til aðstoðar við rannsókn málsins. Í ljós kemur að undir vináttunni krauma ólgandi ástríður, leyndarmál og svik sem eiga rætur langt aftur í tímann og hafa risið upp á yfirborðið. Datt Sunneva fram af svölunum? Lét hún sig falla? Eða var henni hrint?
Samhliða rannsókninni stígur Kamilla fyrstu skrefin í nýju sambandi og tekst um leið á við eigin fortíð og leyndarmál fjölskyldunnar.
„Bókin er nokkurs konar whodunit í anda Agöthu Christie þar sem hópur fólks er samankominn á sama stað, á sama tíma, og fleiri en einn hefur mótíf. Sagan um Rómeó og Júlíu var mér líka hugleikin og þetta er svona mín útgáfa af þeirri sögu. Eins og í fyrri bókum er tveimur andstæðum blandað saman; ljótleika glæpa og fegurð ástarinnar og skoðað hvers vegna gott fólk gerir stundum slæma hluti.
Ég lít jafnframt á seríuna sem ákveðinn heiður til Gísla Guðjónssonar, okkar þekktasta réttarsálfræðings og brautryðjanda í faginu,“ segir Hugrún Björnsdóttir.

Hugrún Björnsdóttir vakti athygli með fyrstu spennusögu sinni, Rót alls ills, og fylgdi henni eftir með Uns dauðinn aðskilur okkur, sem nutu báðar mikilla vinsælda á Storytel. Milli ástar og haturs er þriðja bókin um réttarsálfræðinginn Kamillu Brim. Með bókunum hefur Hugrún skapað sér sérstöðu með því að sameina sálfræðilega spennu, rómantík og áleitnar spurningar um mannlegt eðli og réttlæti.
Milli ástar og haturs er fáanleg bæði sem hljóðbók í lestri Haraldar Ara Stefánssonar og Berglindar Öldu Ástþórsdóttur, og sem rafbók í Storytel.