Ástir, galdrar og myrk leyndarmál í nýjum sögulegum sagnaflokki Birgittu H. Halldórsdóttur
Mæðgurnar, fyrsta bókin í nýjum sögulegum sagnaflokki eftir Birgittu H. Halldórsdóttur, er komin út á Storytel. Sagan gerist á Vestfjörðum á 16. öld þar sem ástir, galdrar og myrk leyndarmál fléttast saman og örlög kvenna eru í forgrunni.
Í einangraðri sveit á sunnanverðum Vestfjörðum á 16. öld er Guðrún í Seli grýtt fyrir fimmtán ára gamlan glæp sem sveitungar hennar kalla blóðskömm. Dóttir hennar, Álfheiður, verður vitni að ofbeldinu, hleypur í skelfingu fram af bjargi og er talin af - en þetta er aðeins upphafið á sögu okkar.
Skammt frá sveitinni, í djúpum og aflokuðum dal, leynast leyndarmál fortíðarinnar þar sem útlegumenn lifa eftir eigin lögmálum og dýrka gleymda heiðni og galdra. Í landi elds og ísa mætast örlög og ástir í æsispennandi sagnaflokki þar sem engin kona er fórnarlamb heldur skapari eigin örlaga.

Birgitta H. Halldórsdóttir hefur skrifað fjölda bóka á löngum ferli og eru sögur hennar vel þekktar meðal íslenskra lesenda og hlustenda. Eftir hana liggja meðal annars spennusögur, glæpasögur og rómantískar ástarsögur. Í Mæðgunum snýr hún sér að sögulegri rómantík þar sem örlög kvenna eru í forgrunni.
Mæðgurnar kom út sem hljóðbók í lestri Söru Dögg Ásgeirsdóttur og sem rafbók á Storytel 7. september 2026.
Nafn: Mæðgurnar
Nafn: Birgitta H. Halldórsdóttir
Mynd: Eva Schram
Nafn: storytell_ev-9.jpg
Mynd: Eva Schram
Nafn: storytell_ev-3.jpg
Mynd: Eva Schram