Frjálsar fæðingar innblástur að nýrri íslenskri spennusögu frá Sjöfn Asare
Hvað gerist þegar leit að fullkominni fæðingarupplifun verður hættuleg? Þessari spurningu veltir Sjöfn Asare upp í Fylgjumst að, nýrri spennusögu sem sækir innblástur í umræðu um freebirth-hreyfinguna og þau áhrif sem netsamfélög geta haft á fólk á viðkvæmum tímum.
Sóley er í fæðingarorlofi, Heiða er byrjuð aftur að vinna og ljúfa lífið liggur fyrir nýslegnum mæðgum. En að eiga barnið var þeim sár reynsla og þrátt fyrir fegurðina, birtuna og hreinu ástina sem þær uppskáru situr sársaukinn í þeim. Brátt kemst Sóley á snoðir um hlaðvarpið Fylgjumst að sem kynnir verðandi mæður fyrir frjálsum fæðingum. Utan læknisþjónustu, ljósmæðra og jafnvel utan kerfisins. Líkami konunnar var skapaður til að fæða barn.
Innan tíðar fær Sóley að vita að kona ein hefur leitað hjálpar. Henni var sagt að barnið hennar hafi látist í frjálsri fæðingu. En hún stendur í þeirri trú að barnið hafi lifað. Hún trúir því að barnið hafi verið tekið frá henni.
Sóley fyllist forvitni um þetta hlaðvarp, Fylgjumst að, og hvers vegna þessar hugmyndir skuli njóta slíkra vinsælda. Óðara fær hún hugmynd að nýrri rannsóknarseríu og er ekki komin ýkja djúpt undir yfirborðið þegar skuggalegri hliðin á þessum hugmyndum og þessu stækkandi samfélagi líta dagsins ljós.
Fylgjumst að kemur út sem hljóðbók í lestri Sólbjartar Sigurðardóttur og sem rafbók á Storytel 11. ágúst 2026.
Um höfund
Sjöfn Asare er bókmenntafræðingur og hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem spennusagnahöfundur sem sækir efnivið í samtímann. Í bókum sínum sameinar hún spennu og áleitin samfélagsmál á áhugaverðan hátt. Fyrsta skáldsaga Sjafnar, Flæðarmál, bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Storytel árið 2020 og önnur bókin í seríunni, Ég elska þig meira en salt, var tilnefnd til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna. Fylgjumst að er þriðja bókin í seríunni um Sóleyju og Heiðu.

