Bestu hljóðbækur ársins verðlaunaðar!
Mikil stemming var á Parliament hótelinu þriðjudaginn 17. mars þegar Íslensku hljóðbókaverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í sjöunda sinn. Meðal sigurvegara var hinn ungi og efnilegi rithöfundur Embla Bachmann, Glæpadrottning Satu Rämö auk þess sem leikarinn Bjarni Snæbjörnsson hlaut verðlaun fyrir sjálfsævisögu sína Mennsku.
Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 2020 og eru orðinn fastur hápunktur íslensks hljóðbókaárs. Þar komu saman höfundar, lesarar, útgefendur og aðrir aðstandendur bókmennta til að fagna framúrskarandi hljóðbókaútgáfu síðasta árs. Veitt voru verðlaun í fimm flokkum auk sérstakra heiðursverðlauna.
Þúsundir hlustenda tóku þátt í almenningskosningu í janúar þar sem valdar voru tilnefningar til verðlaunanna. Að því loknu voru tilnefndar bækur metnar af fagdómnefndum. Dómnefndirnar eru skipaðar rithöfundum, lesurum og fagfólki í umfjöllun um bókmenntir og menningu.
Í dómnefndum sátu:
Fyrir skáldsögur, ljúflestur og rómantík: Þórunn Erna Clausen, Rebekka Sif Stefánsdóttir og Unnur Birna Backman
Fyrir óskáldað efni og glæpa- og spennusögur: Ingibjörg Iða Auðunardóttir, Vera Illugadóttir og Kristján Franklín Magnús
Fyrir börn og ungmenni: Jóhann Sigurðarson, Símon Birgisson og Sigrún Elíasdóttir
Dómnefndir höfðu það að leiðarljósi að líta heildstætt á hvert verk þar sem vandaður lestur á góðu ritverki getur bætt miklu við upplifun lesandans. Því voru ekki aðeins rithöfundar verðlaunaðir heldur einnig lesarar hljóðbókanna.
Verðlaunahafar Íslensku hljóðbókaverðlaunanna 2026 eru eftirfarandi:
Besta barna- og ungmennabókin: Kærókeppnin
Höfundur: Embla Bachmann
Lestur: Embla Bachmann og Mikael Kaaber
Útgefandi: Bókabeitan
Í umsögn dómnefndar segir: „Kærókeppnin er frumleg, stórskemmtileg og fyndin saga sem rígheldur lesanda frá upphafi til enda og forðast listilega að lenda í gryfjum hefðbundinna klisja unglingabóka. Lesararnir tveir koma mismunandi sjónarhornum aðalpersónanna vel til skila í lifandi og blæbrigðaríkum lestri. Að hafa unga lesara að lesa fyrir unglinga eykur trúverðugleika sögunnar og nýtir möguleika hljóðbókaformsins vel.“
Besta óskáldaða efni: Mennska
Höfundur og lesari: Bjarni Snæbjörnsson
Útgefandi: Forlagið
Í umsögn dómnefndar segir: „Í Mennsku segir Bjarni Snæbjörnsson af hispursleysi frá uppvexti sínum sem samkynhneigður maður í smábæ á Vestfjörðum, frá leið sinni út úr skápnum og glímunni við ótta og skömm á þeirri vegferð. Bókin er á köflum átakanleg en einnig meinfyndin, og gefur góða innsýn í þá innri og ytri baráttu sem margt hinsegin fólk hefur þurft að eiga í til að komast í sátt við sjálft sig og samfélagið. Höfundur les bókina sjálfur af leikni og einlægni, sem hentar vel svo persónulegri frásögn, og hlustendur hrífast með sorgum Bjarna og sigrum.“
Besta skáldsagan: Viðkomustaðir
Höfundur: Ásdís Ingólfsdóttir
Lestur: Valý Þorsteinsdóttir
Útgefandi: Storyside / Sæmundur
Í umsögn dómnefndar segir: „Viðkomustaðir er hrífandi og áhrifamikil skáldsaga um unga stúlku sem hrekst frá Íslandi alla leiðina í Vesturheim. Hún berst í gegnum erfiða tíma með þrautseigju og bjartsýni. Viðfeðmi karaktera og efnistaka gefur manni góða innsýn í þá miklu breytingar sem fylgdu því að flytja til Vesturheims. Frásögnin er einlæg og situr eftir í huga þess sem hlustar. Björt og falleg rödd Valýar Þórsteinsdóttur hentar sögunni einstaklega vel og er laus við óþarfa tilþrif. Átakanleg saga eins og Viðkomustaðir þarfnast ákveðins viðnáms sem jafnar hana út sem Valý gerir snilldarlega.“
Besta rómantík og ljúflestrarbók: Fiðrildaherbergið
Höfundur: Lucinda Riley
Lestur: Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Þýðing: Valgerður Bjarnadóttir
Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa
Í umsögn dómnefndar segir: „Fiðrildaherbergið er margradda örlagasaga um Pósu og fjölskyldu hennar á Austur-Englandi. Efnistökin eru spennandi og áhugaverð og höfundur kemur tíðarandanum um miðja tuttugustu öld í Bretlandi vel til skila. Lestur Álfrúnar Örnólfsdóttur er óaðfinnanlegur og hentar bók sem þessari gífurlega vel. Bæði flæði og skýrleiki er til fyrirmyndar og innlifunin rétt tímasett. Lesturinn glæðir bókina lífi og heldur athygli þess sem hlustar.“
Besta glæpa- og spennusagan: Hildur
Höfundur: Satu Rämö
Lestur: Sigríður Eyrún Friðriksdóttir
Þýðing:Erla Elíasdóttir Völudóttir
Útgefandi: Forlagið
Í umsögn dómnefndar segir: „Satu Rämö kveður sér hljóðs í heimi norrænna glæpasagna með titilpersónunni Hildi og kemur um leið Ísafirði á kortið sem litlum morðbæ á hjara veraldar. Með skemmtilegri og hlýrri persónusköpun og áhugaverðri fléttu fortíðar og nútíðar að vopni tekst höfundi að skapa trúverðugan sagnaheim sem situr eftir hjá lesandanum. Lestur Sigríðar Eyrúnar Friðriksdóttur glæðir söguna lífi og hrífur fólk með sér alla leið á Vestfirði í morðráðgátu þar sem engin leið er að giska á hver morðinginn er.“
Bjarni Fritzson hlaut sérstök heiðursverðlaun
Heiðursverðlaun Íslensku hljóðbókaverðlaunanna 2026 hlaut rithöfundurinn, sálfræðingurinn og fyrirlesarinn Bjarni Fritzson. Þau fær hann fyrir ómetanlegt starf við fræðslu barna og ungmenna og framlag sitt til barnabókmennta. Þá hefur hann með námskeiðum, fyrirlestrum og skemmtilegum sögum aukið lestraráhuga og stuðlað að sjálfstyrkingu barna og ungmenna.
Bjarni er höfundur vinsælla sjálfstyrkingarbóka fyrir börn og bókaseríunnar um Orra óstöðvandi og Sölku, sem notið hafa mikilla vinsælda og trónað á topplistum. Í bókum sínum sameinar hann frásagnargleði, sálfræði og fræðslu á aðgengilegan hátt og talar beint inn í heim barna, sérstaklega drengja, án þess að útiloka aðra lesendur.
Með sögum sínum hefur Bjarni stuðlað að auknum lestraráhuga barna sem annars tengja sig síður við hefðbundið lesefni. Í verkum hans eru tilfinningar, hugrekki og vinátta í forgrunni og lesturinn verður að spennandi ævintýri sem styrkir sjálfsmynd og sjálfstraust ungs fólks.
Bjarni er með B.S. gráðu í sálfræði og framhaldsmenntun í félags- og vinnusálfræði og jákvæðri sálfræði. Hann er jafnframt eigandi sjálfstyrkingarfyrirtækisins Út fyrir kassann, þar sem hann heldur námskeið og fyrirlestra fyrir börn, ungmenni og foreldra. Með starfi sínu hefur hann haft áhrif langt út fyrir blaðsíður bókanna og hvatt ungt fólk til sjálfstrausts og jákvæðrar sjálfsmyndar.
Kristín Tómasdóttir afhenti Bjarna heiðursverðlaunin fyrir þetta ómetanlega framlag til að efla ungt fólk með sögum og fræðslu.