Ótti - Ný glæpasaga Steindórs Ívarssonar komin út
Ný glæpasaga Steindórs Ívarssonar, Ótti, er komin út á Storytel í mögnuðum lestri Birnu Pétursdóttur. Ótti er fjórða bókin í hinni vinsælu glæpasagnaseríu Steindórs um rannsóknarlögreglukonuna Rúnu, en áður hafa komið út bækurnar Blóðmeri, Völundur og Herranótt.
Þegar hin tvítuga Ólöf Snorradóttir finnst látin á kaldri stéttinni fyrir framan blokk við Austurbrún bendir allt til þess að hún hafi í örvæntingu og undir áhrifum vímuefna svipt sig lífi með því að stökkva fram af þaksvölunum. En von bráðar vaknar grunur um að ekki sé allt sem sýnist.
Rannsóknarlögreglukonurnar Rúna og Hanna kafa dýpra undir yfirborðið og fyrr en varir blasir við hrollvekjandi sannleikur: Ólöf var haldin sjúklegri lofthræðslu og hefði aldrei stigið sjálfviljug út á svalirnar.
Fljótlega vindur rannsóknin upp á sig og teygir anga sína inn í dularfullan og lokaðan sértrúarsöfnuð, Hið heilaga blóð Krists, sem faðir Ólafar stýrir af miskunnarlausri hörku. Undir yfirskini guðsótta og réttsýni leynast skelfileg leyndarmál og grimmilegt ofbeldi.

Fjölhæfur og afkastamikill höfundur
Steindór Ívarsson hefur á undanförnum árum sent frá sér bæði glæpasögur og skáldsögur sem hafa notið mikilla vinsælda meðal hlustenda Storytel.
Samhliða glæpasögunum um Rúnu hefur Steindór sent frá sér þrjár bækur í svokallaðri sálarseríu sinni. Tvær glæpasagna hans hafa hlotið tilnefningu til Blóðdropans auk þess sem bækur hans hafa verið tilnefndar til íslensku hljóðbókaverðlaunanna, Storytel Awards.
Í Ótta fléttar Steindór saman spennandi sakamálarannsókn og sögu þar sem sjónum er meðal annars beint að trúarofbeldi, valdi og leyndarmálum innan lokaðs samfélags.
Ótti er komin út sem rafbók og sem hljóðbók á Storytel í lestri Birnu Pétursdóttur.
Nafn: Ótti eftir Steindór Ívarsson
Nafn: Steindór Ívarsson