Neyðarástand: Dagbók móður úr Grindavík – áhrifamikil frásögn Karitasar Nínu Viðarsdóttur
Þann 5. október kemur út hjá Storytel Original bókin Neyðarástand: Dagbók móður úr Grindavík eftir Karitas Nínu Viðarsdóttur. Bókin byggir á dagbókum sem Karitas hélt í náttúruhamförunum sem hófust í Grindavík haustið 2023 og umturnuðu lífi hennar, fjölskyldu hennar og heils samfélags.
Í þessari áhrifamiklu frásögn segir Karitas á opinskáan hátt frá atburðunum sem skullu á heimabæ hennar. Frá sífelldum jarðskjálftum sem leiddu til allsherjarrýmingar Grindavíkur og síðar eldgosahrinunnar sem kennd er við Sundhnúkselda. Samhliða náttúruhamförunum rísa persónuleg áföll upp á yfirborðið, í bland við ljúfar og fallegar minningar úr uppvextinum.
Karitas leiðir lesandann á einlægan og berskjaldaðan hátt í gegnum rýminguna, eldgosin og óvissuna sem tók við. Hún lýsir skyndilegu heimilisleysinu og sorginni sem fylgir því að sjá bæinn sinn verða náttúruöflunum að bráð. Öryggisleysinu og angistinni sem fylgir því að vera máttvana þegar heimilið, æskuslóðirnar og samastaðurinn í heiminum riða til falls.
Karitas Nína Viðarsdóttir er Grindvíkingur í húð og hár. Neyðarástand er hennar fyrsta bók, persónuleg og áhrifamikil frásögn af áföllum, óvissu og lífsbaráttu, byggð á dagbókum sem hún hélt á meðan náttúruhamfarirnar umturnuðu lífi Grindvíkinga.
Neyðarástand: Dagbók móður úr Grindavík kemur út sem hljóð- og rafbók hjá Storytel Original 5. október 2026. Leikkonan Aníta Briem les hljóðbókina.
Nafn: Neyðarástand