Storytel kynnir nýja eiginleika í appinu sem hjálpa hlustendum að komast aftur í söguna.
Storytel er sífellt að þróa nýja eiginleika út frá hlustunarvenjum notenda til að gera upplifunina einfaldari og þægilegri. Nýjustu eiginleikarnir í appinu, Recap og Sleep Timer Recap, hjálpa notendum að rifja upp söguþráðinn og halda áfram þar sem frá var horfið, hvort sem hléið var í nokkra daga eða ef sofnað var í miðjum kafla.
Með Recap fá notendur stutta upprifjun á því sem gerðist síðast áður en þeir halda áfram að hlusta. Eiginleikinn hentar sérstaklega vel þeim sem eru að halda áfram með bók eftir að hafa tekið pásu frá lestrinum eða eru að skipta á milli prentbókar og hljóðbókar. Eiginleikinn birtist þegar hlustað hefur verið í að minnsta kosti 15 mínútur.
Mjög margir nota svefnstillingu á hverju kvöldi en eiga erfitt með að finna aftur rétta staðinn morguninn eftir. Sleep Timer Recap býr því sjálfkrafa til stutta samantekt á því sem spilaðist á meðan svefnstillingin var virk og birtir hana þegar hlustandinn vaknar. Þannig er auðveldara að hoppa aftur inn í söguna án þess að þurfa að spóla fram og til baka.
Markmiðið með þessum eiginleikum er að gera hlustunina flæðandi svo auðveldara sé að halda áfram þar sem frá var horfið og klára fleiri sögur. Eiginleikarnir eru nú þegar aðgengilegir fyrir þúsundir titla á Íslandi.