Kynning á Storytel Pulse fyrir íslenskum rithöfundum
Storytel bauð nýverið íslenskum rithöfundum á morgunverðarkynningu þar sem nýi vettvangurinn Storytel Pulse var kynntur. Pulse veitir höfundum aðgang að innsýn um hvernig lesendur og hlustendur njóta bóka þeirra á Storytel og er ætlað að styðja við upplýstari ákvarðanatöku og dýpri tengsl við lesendahópinn.
Á kynningunni gafst höfundum tækifæri til að kynna sér helstu eiginleika Pulse, spyrja spurninga og ræða hvernig gögn og innsýn geta nýst í skapandi starfi.
Áhugasamir höfundar geta kynnt sér Storytel Pulse á authors.storytel.com, þar sem allir höfundar með útgefna bók á Storytel geta sótt um aðgang.

Nafn: Storytel Pulse kynning