Litla-Kló er fyrsta barnabók Díönu Sjafnar Jóhannsdóttur
Barnabókin Litla-Kló er hjartnæm og falleg saga um vináttu, drauma og leyndarmál og hversu erfitt það getur stundum reynst okkur að breyta rétt.
Rúna er átta ára og óskar sér einskis heitar en að eignast kettling. En hvernig eiga draumar hennar að rætast þegar mamma hennar er með ofnæmi? Einn daginn finnur Rúna lítinn og umkomulausan kettling á leiðinni heim úr skólanum. Þá ákveður hún að taka málin í eigin hendur! Hún getur allavega ekki bara skilið hann eftir aleinan og yfirgefinn. Einhver verður að taka hann að sér. Hvað myndir þú gera?
Það á líka örugglega enginn annar þennan kettling. Eða hvað?
Hversu erfitt er að leyna kettlingi frá mömmu og pabba og sjá um hann sjálf í herberginu sínu? Hún þarf bara að passa að það heyrist ekkert til hans og að hann klóri ekki rúmfötin eða pissi á gólfið. Líklega þarf hún líka að fara að taka sjálf til í herberginu sínu svo mamma fari ekki að hnerra og uppgötvi leyndarmálið.

Hugmyndin að Litlu Kló kviknaði meðal annars út frá fimm ára dóttur Díönu, sem dreymir sjálfa um að eignast kettling og varð sérstakur ráðgjafi móður sinnar við skrifin. Díana segir mikilvægt að íslensk börn hafi aðgang að fjölbreyttu úrvali íslenskra sagna og að það hafi verið ein helsta hvatningin að baki bókinni.
„Dóttir mín var mikill innblástur við skrifin og sérlegur ráðgjafi minn enda dreymir hana sjálfa um að eignast kettling. Bókin varð að mestu til á kvöldin, meðfram tveimur vinnum og fjölskyldulífi með tvö börn, svo þetta var sannkallað hjartans verkefni.“ segir Díana Sjöfn.
Litla-Kló er fyrsta barnabók Díönu Sjafnar Jóhannsdóttur en áður hefur hún sent frá sér nóvellu og ljóðabækur og smásagnasafn í samstarfi við tvo aðra höfunda ásamt skáldsögunni Ólyfjan (2019).