Skip to main content

Storytel Pulse: Rauntímagögn og innsýn fyrir höfunda

22 maí 2026

Storytel Pulse

Storytel Pulse er nýr vettvangur sem gefur höfundum innsýn í lestur og hlustun á eigin bækur í rauntíma á einfaldan og sjónrænan hátt. Þar geta bæði nýir og reyndir höfundar fylgst með því hvernig bækur þeirra eru að standa sig, nánast á meðan lestur og hlustun á sér stað. Storytel Pulse hefur verið þróað í nánu samstarfi við höfunda og byggir á áhuga þeirra að fá skýrari innsýn í hvernig bækur lifa hjá lesendum og hlustendum.

Meðal þess sem höfundar geta nú séð er:

  • Hlustendapúls: Sýnir hversu margir eru að lesa og hlusta á bækur höfundarins hverju sinni.
  • Samanburður á eigin titlum: Höfundar geta borið saman allt að fimm eigin bækur til að sjá hvað heldur best athygli og hvernig lestur og hlustun á bók þróast.
  • Landfræðileg innsýn: Sýnir hvar hlustendur eru staðsettir, ekki bara í hvaða löndum heldur niður á borg eða bæjarfélag. Þessi gögn geta nýst vel við markaðssetningu og skipulagningu viðburða.
  • Bókahillan: Með því að fylgjast með hvaða bækur hlustendur vista hjá sér í bókahilluna er hægt að sjá hversu mikil eftirvænting myndast fyrir útgáfu bókar og hvernig notendur flakka á milli bóka í bókaseríum.

Síðar á þessu ári munu bætast við nýir eiginleikar, meðal annars:

  • Samfélagsmiðlar og kynning: Gagnlegt tól til að deila með einföldum og myndrænum hætti áhugaverðu efni á eigin samfélagsmiðlum.
  • Betri yfirsýn: Hvernig hlustun á bækur þróast jafnvel þótt þær séu ekki á topplistum í appinu. 

Margir þeirra höfunda sem hafa fengið að prófa betaútgáfu Pulse hafa lýst mikilli ánægju:

„Ég elska Pulse og hef getað fylgst með því í rauntíma hvernig áhuginn á bókunum mínum breytist, til dæmis eftir umræður á samfélagsmiðlum. Þetta er ótrúlega áhugavert og gagnlegt fyrir mína eigin skipulagningu. Þjónustan er mjög verðmæt fyrir mig sem höfund.“
– Frida Gråsjö

„Ég er gjörsamlega húkkt á Pulse. Ég kíki inn á hverjum degi til að bera saman við fyrri daga, vikur og mánuði. Það er líka frábært að geta séð hvernig alþjóðlegu titlarnir mínir standa sig!“
– Charlotte Al-Khalili

„Ég var að tala á viðburði og sá svo aukningu í því þegar bókunum mínum var bætt í bókahillur í Storytel Pulse. Það var svo skemmtilegt og áhugavert að sjá hversu bein áhrif viðburðurinn hafði á áhugann á bókunum mínum!“
– Linda Ståhl

„Þetta er svo skemmtilegt og eiginlega pínu ávanabindandi! Það er algjört egóbúst að hafa síðuna alltaf opna og geta stokkið inn hvenær sem er til að sjá hversu margir eru að hlusta á bækurnar mínar akkúrat núna.“
– Elinor Kapp

Nánari upplýsingar um Storytel Pulse má finna á slóðinni https://authors.storytel.com/ og þar geta áhugasamir höfundar sem eiga efni á Storytel sótt um aðgang.

Nýjustu fréttir

04/5/2026 - Síðast uppfært 10 maí 2026

Storytel kynnir nýja eiginleika í appinu sem hjálpa hlustendum að komast aftur í söguna.

Storytel er sífellt að þróa nýja eiginleika út frá hlustunarvenjum notenda til að gera upplifunina einfaldari og þægilegri. Nýjustu eiginleikarnir í appinu, Recap og Sleep Timer Recap, hjálpa notendum að rifja upp söguþráðinn og halda áfram þar sem frá var horfið, hvort sem hléið var í nokkra daga eða ef sofnað var í miðjum kafla.

16/4/2026

Niðurstöður Söguáskorunar Storytel

Söguáskorun Storytel 2026 er nú lokið. Við viljum þakka öllum sem tóku þátt fyrir frábærar viðtökur og fjölbreytt handrit. Það er greinilegt að mikill áhugi á sagnagerð og að margir búa yfir sterkum hugmyndum og sköpunarkrafti. Eftir vandlega yfirferð dómnefndar hefur verið tekin sú ákvörðun að veita ekki útgáfusamning að þessu sinni. Engu að síður bárust okkur áhugaverðar hugmyndir og greinilegt er að mikil frásagnargleði býr í unga fólkinu okkar á íslandi.

18/3/2026

Bestu hljóðbækur ársins verðlaunaðar!

Mikil stemming var á Parliament hótelinu þriðjudaginn 17. mars þegar Íslensku hljóðbókaverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í sjöunda sinn. Meðal sigurvegara var hinn ungi og efnilegi rithöfundur Embla Bachmann, Glæpadrottning Satu Rämö auk þess sem leikarinn Bjarni Snæbjörnsson hlaut verðlaun fyrir sjálfsævisögu sína Mennsku. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 2020 og eru orðinn fastur hápunktur íslensks hljóðbókaárs. Þar komu saman höfundar, lesarar, útgefendur og aðrir aðstandendur bókmennta til að fagna framúrskarandi hljóðbókaútgáfu síðasta árs. Veitt voru verðlaun í fimm flokkum auk sérstakra heiðursverðlauna.

29/1/2026 - Síðast uppfært 23 mars 2026

Tilnefningar til íslensku hljóðbókaverðlaunanna 2026

Hér má sjá þær 25 hljóðbækur sem hljóta tilnefningu til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna Storytel Awards 2026. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum og fimm hljóðbækur eru tilnefndar í hverjum flokki: börn og ungmenni, glæpa og spennusögur, skáldsögur, ljúflestur og rómantík og óskáldað efni.

16/1/2026

Kosning hafin fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin - Veldu bestu hljóðbækur ársins!

Nú hefur almenningur tækifæri til að kjósa sína eftirlætis hljóðbók í forvali fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin – árlega uppskeruhátíð sem heiðrar höfunda og lesara framúrskarandi íslenskra hljóðbóka frá liðnu ári.

12/1/2026 - Síðast uppfært 15 janúar 2026

Söguáskorun Storytel: Bók fyrir ungmenni, skrifuð af ungmenni.

Nú á nýju ári ætlar Storytel að standa fyrir nýrri söguáskorun fyrir krakka á aldrinum 12-17 ára. Markmiðið er að hvetja sem flesta til að skapa og skrifa eigin sögur. Áskorunin er frábært tækifæri fyrir unga höfunda til að þróa hugmynd í heilsteypta sögu og eiga möguleika á að sjá hana verða að útgefnu verki, bæði sem rafbók og hljóðbók. Öllum krökkum á aldrinum 12-17 er velkomið að taka þátt en skilafrestur er til og með 15. mars næstkomandi.

18/12/2025 - Síðast uppfært 15 janúar 2026

Upplestur á aðventunni

Á aðventunni styrkti Storytel nokkur dvalar- og hjúkrunarheimili aldraðra til að greiða rithöfundum fyrir að koma og lesa fyrir íbúana. Mikil eftirspurn var eftir því að fá upplestur og góður rómur gerður að verkefninu hjá íbúum sem eru að sögn starfsfólks margir duglegir að lesa eða hlusta á bækur. Upplestur bóka fyrir ýmsa hópa fólks er ríkur þáttur í íslenskri bókmenntahefð og viljum við leggja okkar af mörkum við að halda í þessa fallegu íslensku hefð, efla hana og tryggja að hún nái til fleiri, ekki síst þeirra sem hafa takmarkaðri aðgang að menningarviðburðum. Á meðfylgjandi mynd má sjá þegar Dagur Hjartarson rithöfundur heimsótti hjúkrunarheimilið Droplaugarstaði 16. desember sl. og las úr nýútkominni bók sinni Frumbyrjur, sem vakti mikla lukku meðal dvalargesta og starfmanna.   

12/12/2025

Hlustaðu og lestu á sama tíma! Nýr eiginleiki í appinu

Storytel hefur opnað nýjan möguleika fyrir íslenska lesendur sem felst í því að geta lesið texta rafbókar og hlustað á hljóðbók samtímis. Lengi hefur verið kallað eftir þessum möguleika hér á landi en hann getur hjálpað fólki að halda athygli og dýpka lesskilning og er mikilvægur fyrir þá sem eiga erfitt með lestur.

16/9/2025 - Síðast uppfært 16 janúar 2026

Persónuleg saga Birgittu H. Halldórsdóttur um ást, sorg og von

Með nýjustu bók sinni, Síðan hittumst við aftur, slær rithöfundurinn og bóndinn Birgitta H. Halldórsdóttir nýjan streng, persónulegan og einlægan tón sem nær djúpt til allra sem hlusta. Í bókinni opnar hún hjarta sitt og miðlar reynslu sinni af ást, missi og leiðinni í gegnum sorgina eftir skyndilegt áfall. 

14/8/2025 - Síðast uppfært 16 janúar 2026

Sígildir sveitarómansar Ingibjargar Sigurðardóttur koma út á Storytel

Í tilefni þess að rithöfundurinn Ingibjörg Sigurðardóttir hefði orðið 100 ára sunnudaginn 17. ágúst, kemur skáldsaga hennar, Ást og hatur út í hljóðbókarformi á Storytel. 

06/8/2025 - Síðast uppfært 16 janúar 2026

Símon segir. Ný glæpasaga frá Önnu Margréti Sigurðardóttur.

Símon segir eftir Önnu Margréti Sigurðardóttur er spennandi íslensk glæpasaga. Þetta er fjórða bókin í vinsæla bókaflokknum um rannsóknarlögregluteymið Bergþóru og Jakob. Áður hafa komið út bækurnar Hringferðin, Örvænting og Öskrið.

18/7/2025 - Síðast uppfært 16 janúar 2026

Hvað gerist þegar nýskilin miðaldra kona með stórt skap arkar ákveðin út á stefnumótamarkað 21. aldarinnar?

Dagbók miðaldra unglings eftir Sigrúnu Elíasdóttur er gamansöm skáldsaga um blákaldan veruleika konu sem þarf að finna sig á nýjan leik. Sigrún er einna helst þekkt fyrir ljúflestrarbækurnar um Eyrarvík og hlaðvarpið Myrka Ísland, þar sem skuggahliðar Íslandssögunnar eru skoðaðar.

11/7/2025 - Síðast uppfært 16 janúar 2026

Ný glæpasaga Hugrúnar Björnsdóttur: Uns dauðinn aðskilur okkur.

Uns dauðinn aðskilur okkur er önnur bók Hugrúnar Björnsdóttur um réttarsálfræðinginn Kamillu Brim. Kamilla stendur frammi fyrir flóknu máli. Ungur maður kærir konu fyrir kynferðisbrot og samband þeirra reynist flóknara en virðist við fyrstu sýn. 

16/6/2025 - Síðast uppfært 16 janúar 2026

Steindór Ívarsson snýr aftur með áhrifamikla örlagasögu

Steindór snýr nú aftur með nýja bók á Storytel, að þessu sinni örlagasögu sem dregur upp áhrifamikla mynd af lífum tveggja kvenna sem tvinnast saman á óvæntan hátt. Bókin ber titilinn Sálarstríð og er falleg, dramatísk og mannleg saga þar sem upp koma leyndarmál sem fylgja fólki út lífið. Þetta er saga um tengsl, brot, endurkomu og endurlausn. Steindór bregður hér upp sterkum kvenpersónum sem fá að blómstra í miðju sögunnar, hver með sína sögu, en saman verður úr því áhrifarík heild sem lætur engan ósnortinn.

15/4/2025 - Síðast uppfært 20 júní 2025

Sögur fyrir páskafríið

Páskarnir eru fríið þar sem það er fullkomlega í lagi að gera ekkert. Dagarnir verða aðeins lengri, kaffibollinn aðeins notalegri – og þú færð loksins smá stund fyrir þig. Hvort sem þú ætlar að slaka á heima, fara í bústað eða njóta páskana með fjölskyldunni, þá er fátt betra en góð saga með súkkulaðinu. Hér eru sögur á Storytel sem henta fullkomlega í páskastemmningu – allt frá spennandi glæpasögum, grípandi sönnum sögum, hjartnæmum skáldsögum og ævintýrum fyrir börnin. Þú þarft bara að finna þína sögu, hlusta, og njóta.