Upplestur á aðventunni
18 desember 2025 - Síðast uppfært 15 janúar 2026
Á aðventunni styrkti Storytel nokkur dvalar- og hjúkrunarheimili aldraðra til að greiða rithöfundum fyrir að koma og lesa fyrir íbúana. Mikil eftirspurn var eftir því að fá upplestur og góður rómur gerður að verkefninu hjá íbúum sem eru að sögn starfsfólks margir duglegir að lesa eða hlusta á bækur. Upplestur bóka fyrir ýmsa hópa fólks er ríkur þáttur í íslenskri bókmenntahefð og viljum við leggja okkar af mörkum við að halda í þessa fallegu íslensku hefð, efla hana og tryggja að hún nái til fleiri, ekki síst þeirra sem hafa takmarkaðri aðgang að menningarviðburðum.
Á meðfylgjandi mynd má sjá þegar Dagur Hjartarson rithöfundur heimsótti hjúkrunarheimilið Droplaugarstaði 16. desember sl. og las úr nýútkominni bók sinni Frumbyrjur, sem vakti mikla lukku meðal dvalargesta og starfmanna.