Kosning hafin fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin - Veldu bestu hljóðbækur ársins!
Nú hefur almenningur tækifæri til að kjósa sína eftirlætis hljóðbók í forvali fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin – árlega uppskeruhátíð sem heiðrar höfunda og lesara framúrskarandi íslenskra hljóðbóka frá liðnu ári.
Í forvalinu eru vinsælustu hljóðbækurnar sem gefnar voru út íslensku árið 2025. Bækurnar eru valdar út frá hlustun og stjörnugjöfum notenda í Storytel-appinu. Í hverjum flokki eru 15–25 bækur, og verðlaunaflokkarnir eru: skáldsögur, glæpa- og spennusögur, barna- og ungmennabækur, ljúflestur og rómantík, auk óskáldaðs efnis.
Að lokinni kosningu almennings verða fimm efstu hljóðbækurnar í hverjum flokki formlega tilnefndar. Því næst taka við dómnefndir skipaðar af fagfólki á sviði bókmennta sem hafa það að leiðarljósi að líta heildstætt á hvert verk. Sérstök áhersla er lögð á vandaðan lestur, sem eykur upplifun hlustenda. Hljóðbók ársins í hverjum flokki verður síðan útnefnd á glæsilegri verðlaunahátíð í mars, þar sem höfundar og lesarar verða heiðraðir.
Kosningin er opin öllum og fer fram á vef Íslensku hljóðbókaverðlaunanna og stendur til 26. janúar. Taktu þátt og kjóstu þína eftirlætis hljóðbók!
Ljósmyndir frá fyrri hátíðum og frekari upplýsingar má finna á á heimasíðu Íslensku hljóðbókaverðlaunanna.